Bassey genginn til liðs við Fulham (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Calvin Bassey er genginn til liðs við Fulham frá Ajax en hann gerir fjögurra ára samning við félagið. Fulham hefur rétt á því að framlengja um ár til viðbótar.
Þessi 23 ára gamli nígeríski landsliðsmaður getur leikið sem miðvörður og vinstri bakvörður en Ajax keypti hann frá Rangers síðasta sumar.
„Ég veit hversu stórt Fulham er. Þeir eru með klassa leikmenn, þeir eru að spila í úrvalsdeildinni, bestu deild í heimi svo ég þurfti ekki að íhuga þetta lengi," sagði Bassey.
„Félagið er í London svo það er alltaf plús að fara heim. Ég er ánægður að þessu sé lokið og ég get einbeitt mér að fótboltanum og hjálpa liðinu að byggja ofan á síðasta tímabil sem var frábært."
Eins og fyrr segir er Bassey nígerískur landsliðsmaður en hann er fæddur á Ítalíu. Hann spilaði með unglingaliðum Leicester frá 2015-2020.
Joining the journey... ???? pic.twitter.com/Gij3Y6PFbu
— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 28, 2023




