Icardi til Galatasaray (Staðfest)


Mynd: Galatasaray


Mynd: Galatasaray
PSG hefur staðfest að Mauro Icardi sé búinn að gera samning við Galatasaray.
Þessi þrítugi argentíski framherji spilaði með Galatasaray á láni frá PSG á síðustu leiktíð en hann skoraði 23 mörk í 26 leikjum fyrir tyrkneska liðið.
Hann gekk til liðs við PSG árið 2020 frá Inter og skoraði 38 mörk í 92 leikjum. Hann spilaði á Ítalíu frá 2011. Hann flutti ungur að árum til Spánar og lék m.a. með unglingaliði Barcelona áður en hann gekk til liðs við Sampdoria.
Þaðan fór hann svo til Inter árið 2011.
Icardi lék 8 landsleiki fyrir hönd Argentínu og skoraði eitt mark.




