Fotbolti.net
28.07.23 - 18:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ion í Fram (Staðfest)

Ion í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Ion Perello Machí er genginn til liðs við Fram en hann kemur til liðsins frá Þór Akureyri.

Ion er fjölhæfur miðjumaður en hann kemur til liðsins frá Þór. Hann er 25 ára gamall Spánverji og er uppalinn í hinni margfrægu La Masía akademíunni hjá Barcelona.

Hann kom hingað til lands árið 2021 til að spila með Hetti/Huginn en spilaði 13 leiki og skoraði 2 mörk síðasta sumar með Þór. Hann kom við sögu í 9 leikjum í sumar áður en samningaviðræður sigldu í strand.

Miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson gekk til liðs við ÍA frá Fram í gær.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.