Luton kaupir vængbakvörð af Wolves (Staðfest)

Mynd: Luton

Mynd: Luton
Luton hefur fengið Ryan Giles í sínar raðir frá Wolves og er hann sjötti leikmaðurinn sem Luton fær í sumar. Liðið vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor og er verið að þétta raðirnar fyrir komandi átök.
Giles er 23 ára örvfættur vængbakvörður og er kaupverðið óuppgefið en er talið vera í kringum 5 milljónir punda.
Giles er 23 ára örvfættur vængbakvörður og er kaupverðið óuppgefið en er talið vera í kringum 5 milljónir punda.
Giles lék á sínum tíma fjóra leiki fyrir U20 lið Englands. Hann lék einunigs einn keppnisleik fyrir uppeldisfélagið Wolves en hann var síðustu sex tímabil átta sinnum lánaður frá félaginu. Á síðasta tímabili lék hann með Middlesbrough í Championship deildinni og var þar í nokkuð stóru hlutverki - lagði upp ellefu mörk í 45 deildarleikjum.
Rob Edwards er stjóri Luton en hann var þjálfari U23 liðs Wolves þegar Ryan Giles var að spila fyrir liðið.
„Ég er þakklátur Rob fyrir að hafa gefið mér smjörþefinn af fullorðins fótbolta og núna fæ ég tækifæri til að vinna með honum aftur. Það er frábært tækifæri að fá að vinna með honum í úrvalsdeildinni," sagði Giles við undirskrift.

The new away shirt is here...
— Luton Town FC (@LutonTown) July 28, 2023
And so is @ryangiles7! ???? pic.twitter.com/1ve03CpoLI