28.08.13 - 12:57
Magnús Már Einarsson
Willian kominn með leikheimild hjá Chelsea (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Chelsea

Mynd: Heimasíða Chelsea
Chelsea hefur formlega gengið frá kaupunum á Willian frá Anzhi Makhachkala.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 30 milljónir punda en Willian skrifaði undir fimm ára samning við Chelsea eftir að hafa fengið atvinnuleyfi á Englandi.

Liverpool og Tottenham blönduðu sér fyrst í baráttuna um Willian en Chelsea krækti á endanum í þennan 25 ára gamla Brasilíumann.
,,Ég er mjög ánægður með að vera hér. Það hefur verið draumur minn að koma hingað og spila,\" sagði Willian sem mun leika í treyju númer 22 hjá Chelsea en þaðer sama númer og Eiður Smári Guðjohnsen var með á sínum tíma.
,,Chelsea er eitt besta félag í heimi og ég mun núna spila fyrir besta stjóra í heimi. Ég er mjög ánægður og hlakka til.\"

Heimild: Heimasíða Chelsea