Fotbolti.net
28.08.20 - 21:06
Anton Freyr Jónsson

Siggi Höskulds: Ef maður er bestur í Lengjudeildinni þá á maður að vera valinn í U21 landsliðið

Auglýsing
Sigurður Höskuldsson, þjálfari Leiknis

Sigurður Höskuldsson, þjálfari Leiknis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Leiknir Reykjavík og Keflavík mættust í Lengjudeild karla á Domusnova vellinum í Breiðholti í kvöld og endaði leikurinn með 5-1 stórsigri heimamanna.
„Já mjög ánægður með response sem við erum að sýna og við töluðum um það eftir síðasta leik þar sem við vorum líka mjög góðir að það vantaði hungrið og við fórum að hugsa um hvað við værum góðir í fótbolta en við gleymdum að þurfa hafa fyrir þessu og það gjörsamlega stóðst í dag."

„Við vorum miklu betri í fótbolta og unnum fleiri tæklingar, seinni bolta og skallabolta, og bara yfir á öllu og þannig vinnur maður fótboltaleiki.

Leiknir Reykjavík er komið aftur í baráttuna um að komast upp meðal þeirra bestu eftir einungis 1.stig úr síðustu þremur fyrir þennan leik í kvöld.

„Já ég meina við misstum aldrei trú á þessu. Glórulaust að segja þetta meirisegja. Ég var koktraustur að við myndum taka þennan leik í dag og undirbjuggum okkur vel og við erum bara fulla ferð áfram og áfram gakk."

Næsti leikur Leiknis verður á móti ÍBV í Vestmannaeyjum og fær liðið strax annan stórleik.

„Já, stutt á milli og nú eru stóruliðin sem verða fyrir Leiknislestinni."

Vuk Oskar Dimitrijevic sóknarmaður Leiknis hefur verið frábær og var Siggi Höskulds spurður út í valið á U21 landsliðsins en Vuk var ekki valinn í hópinn

„Ég hef ekkert um það að segja. Hann er besti leikmaðurinn í þessari deild og ef maður er besti leikmaðurinn í Lengjudeildinni þá á maður að vera U21 landsliðinu en hann á mörg ár í að getað verið í U21 landsliðinu þannig það er bara áfram gakk á því."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.