Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. ágúst 2022 13:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona gengur illa að losna við Dest
Mynd: EPA

Samuel Umtiti varnarmaður Barcelona gekk til liðs við Lecce á láni á dögunum svo spænska liðið geti skráð Jules Kounde í hópinn.


Eins of flestir vita er liðið í miklum fjárhagsvandræðum en þrátt fyrir það hefur Xavi tekist að styrkja hópinn vel í sumar og samkvæmt spænskum fjölmiðlum er hann alls ekki hættur.

Hægri bakvörðurinn Sergino Dest er ekki mjög vinsæll hjá Xavi en hann er í leit af nýjum bakverði. Hann þarf því fyrst að losa sig við Dest.

Forsvarsmenn Dest eru bjartsýnir á að hann yfirgefi félagið en það hafa þó engin boð borist í hann. Það eru aðeins nokkrir dagar eftir af sumarglugganum.


Athugasemdir
banner
banner
banner