sun 28. ágúst 2022 12:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Eins og að kaupa leikmann sem þú hefur ekki efni á"
Mynd: Getty Images

Burnley, undir stjórn Vincent Kompany er með 9 stig eftir fyrstu sex leikina í Championship deildinni. Jóhann Berg Guðmundsson byrjaði sinn fyrsta leik á tímabilinu í gær í 5-1 sigri á Wigan.


Jóhann Berg hefur verið mikið meiddur en Kompany var spurður hvernig það væri að fá hann til baka.

„Þegar svona menn koma til baka er eins og að kaupa leikmann sem þú hefur ekki efni á, eins og Jay Rodriguez. Nú er að halda þeim heilum, stýra álaginu. Þeir kaupa tíma fyrir menn sem eru næstir á eftir þeim í liðið, það er mikilvægt að hafa þetta jafnvægi í hópnum, og það sýndi sig í dag," sagði Kompany.

Jay Rodriguez skoraði fyrsta mark leiksins eftir að boltinn hrökk til hans eftir að skot Jóhanns fór í varnarmann.


Athugasemdir
banner
banner
banner