Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 28. ágúst 2022 22:19
Stefán Marteinn Ólafsson
Óskar Hrafn: Fannst við ekki taka fótinn af bensíngjöfinni frá upphafi
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Topplið Breiðabliks tóku á móti botnliði Leiknis frá Reykjavík í kvöld þegar lokaleikur dagsins í 19.umferð Bestu deildar karla fór fram á Kópavogsvelli.

Eftir að hafa bara leitt 1-0 í hálfleik enduðu Blikar sterkt og fóru að lokum með 4-0 sigur og styrktu um leið stöðu sína í toppbaráttunni.


Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Leiknir R.

„Öflug frammistaða fannst mér hjá liðinu og svo sem ekkert annað sem dugði, við sáum það í síðasta leik þeirra gegn KR og Leiknir hafa verið erfiðir andstæðingar margra liða í sumar og við vissum það að við þyrftum á góðum leik að halda til að klára þá og það varð raunin. Mér fannst við ekki taka fótinn af bensíngjöfinni frá upphafi og bara mjög sáttur við frammistöðuna" Sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks eftir leikinn í kvöld.

„Leiknismenn eru bara alltaf erfiðir. Það þarf að hafa fyrir því að spila á móti þeim, þeir gefa allt sem þeir eiga alltaf og þeir hættu aldrei og vel gert hjá þeim að einhvernvegin reyna að hanga í okkur og halda haus og halda áfram þar til að lokaflautið gall. Þeir voru einhvernvegin alltaf að reyna og við gátum ekkert leyft okkur að slaka á sem er er bara vel gert hjá þeim og til marks um karakterinn í þeirra liði."

Blikar voru meðvitaðir um hvernig úrslitin á Akureyri höfðu farið en Óskar Hrafn sagðist ekki geta verið að hugsa um hversu langt er niður í næstu lið.

„Getum ekki verið að hugsa um það hvað er langt niður í þennan eða hinn eða hversu mikil forysta því ef við gáum ekki af okkur þá getur svona forysta gufað upp á augabragði."

Nánar er rætt við Óskar Hrafn Þorvaldsson í spilaranum hér fyrir ofan.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner