Fotbolti.net
03.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ekkert kaupákvæði í lánssamningi Onana

Ekkert kaupákvæði í lánssamningi Onana
Canon

Mynd: EPA

Kamerúnski markvörðurinn Andre Onana færist nær því að ganga aftur í raðir Trabzonspor á láni frá Manchester United.
Man Utd lánar Onana aftur
TENGT EFNI

Man Utd lánar Onana aftur

Onana eyddi síðustu leiktíð á láni hjá tyrkneska félaginu, þar sem hann spilaði 29 deildarleiki og hélt hreinu sex sinnum.

Trabzonspor mun greiða meirihluta launa hans, en ekkert kaupákvæði verður í lánssamningnum.

Þessi þrítugi markvörður snýr því aftur til Manchester United á næsta ári. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2028 eftir að hafa skrifað undir fimm ára samning þegar hann kom frá Inter fyrir 47,2 milljónir punda árið 2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.