HM: Sviss þægilega áfram í 16-liða úrslit

Breel Embolo fagnar marki sínu

Mynd: EPA

Sviss mætir Gana eða Kólumbíu í 16-liða úrslitum

Mynd: EPA

Breel Embolo fagnar marki sínu

Mynd: EPA
Sviss 2 - 0 Alsír
1-0 Breel Embolo ('10 )
2-0 Dan Ndoye ('46 )
1-0 Breel Embolo ('10 )
2-0 Dan Ndoye ('46 )
Sviss vann sanngjarnan 2-0 sigur á Alsír í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins á BC Place í Vancouver í Kanada í nótt.
Sviss var sigurstranglegra fyrir leik, en Alsíringar höfðu sýnt mikla baráttu á mótinu.
Alsír var meira með boltann í fyrri hálfleiknum, en gerði lítið við hann. Sviss var aftur á móti með skýra áætlun, beitti henni vel og refsaði þegar tækifærin gáfust.
Breel Embolo kom Sviss yfir á 11. mínútu, en hann þurfti þó að gera minnstu vinnuna. Johan Manzambi, sem hefur sprungið út á þessu móti, átti stórkostlegt hlaup upp vinstri kantinn, fór framhjá varnarmanni, hélt áfram upp að endamörkum og renndi boltanum fyrir markið. Þar var Embolo mættur á nærstöngina og setti boltann í netið.
Manzambi er þar með kominn með þrjú mörk og tvær stoðsendingar á mótinu. Embolo var að skora sitt annað mark, en hann var einnig kominn með tvær stoðsendingar fyrir leikinn.
Sviss var ekki lengi að bæta við í síðari hálfleik. Dan Ndoye skoraði annað mark liðsins og sitt fyrsta á mótinu eftir slaka hreinsun Rafik Belghali.
Belghali ætlaði að koma boltanum frá marki, en hreinsunin fór beint út fyrir teiginn á Ndoye. Hann tók við boltanum og stýrði honum laglega í vinstra hornið.
Alsíringar fengu tvær góðar skotstöður, sitt hvorum megin við hálfleikinn, en fóru illa með þær.
Staðan var 2-0 þegar komið var að síðari vatnspásunni og Sviss í nokkuð þægilegri stöðu.
Það stóð ekki mikil ógn af Alsír eftir það, þó Sviss byði þeim stundum að koma á sig með því að liggja djúpt. Einhvern veginn var Sviss líklegra til að bæta við en Alsír til að minnka muninn.
Fabian Rieder átti líklega versta klúður mótsins eftir fyrirgjöf frá Zakaria. Zidane fór út í boltann en náði ekki til hans og Rieder var einn fyrir opnu marki. Hann klúðraði hins vegar illa úr dauðafæri. Það var eiginlega erfiðara að klúðra en að skora í þessari stöðu.
Það kom þó ekki að sök. Bensínið var búið hjá Alsíringum og Sviss sigldi sigrinum heim af öryggi.
Sviss er komið áfram í 16-liða úrslit og mætir þar annað hvort Gana eða Kolumbiu. Alsíringar hafa hins vegar lokið leik á mótinu með aðeins einn sigur.