Fotbolti.net
03.07.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Stjarna Ástralíu í ensku úrvalsdeildina?

Stjarna Ástralíu í ensku úrvalsdeildina?
Canon

Mynd: EPA

Nestory Irankunda, stjarna Ástralíu, gæti mögulega spilað í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en þetta herma heimildir Sky Sports.
Irankunda, sem fór ungur að árum til þýska stórveldisins Bayern Munchen, er í dag á mála hjá Watford í ensku B-deildinni.

Irankunda hefur slegið í gegn með Ástralíu á HM, þar sem liðið er komið í 32-liða úrslit.

Áhuginn á honum hefur eðlilega aukist og fyrsta tilboðið úr ensku úrvalsdeildinni er þegar komið. Nýliðar Hull City lögðu fram 10 milljóna punda tilboð í leikmanninn, en Watford hafnaði því um hæl.

Hull er að reyna að styrkja sóknarlínuna fyrir langt og erfitt tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Liðið tryggði sér sæti í deildinni með sigri í umspilinu og þarf að bæta hressilega í hópinn ef ekki á illa að fara.

Watford keypti Irankunda frá Bayern Munchen á síðasta ári fyrir 2,5 milljónir punda, en Bayern er með endursöluákvæði í samningnum auk endurkaupsréttar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.