Fotbolti.net
28.08.23 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Van Dijk á leið í fjögurra leikja bann?

Van Dijk var ósáttur þegar hann fékk rauða spjaldið.

Van Dijk var ósáttur þegar hann fékk rauða spjaldið.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er möguleiki á því að Virgil van Dijk spili ekkert með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í september.
Van Dijk fékk rauða spjaldið í 1-2 sigri gegn Newcastle í gær fyrir brot á sóknarmanninum Alexander Isak.

Fram kemur á The Times í dag að Hollendingurinn sé mögulega á leið í fjögurra leikja bann.

Van Dijk lét nefnilega dómarann, John Brooks, heyra það þegar rauða spjaldið fór á loft og neitaði upphaflega að fara af velli. Enska fótboltasambandið er með mjög strangar reglur og gæti Van Dijk því farið í lengra bann.

Van Dijk missir af leikjum gegn Aston Villa, Wolves, West Ham og Tottenham ef hann fer í fjögurra leikja bann.

<b>Enski boltinn</b> - Költhetjan Nunez verður að vera betri en Origi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.