Tony Khan, eigandi Fulham, fór á Twitter eftir tap liðsins gegn Aston Villa í dag og bað þar stuðningsmennina afsökunar.
Fulham hefur tapað fyrstu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni en liðið komst aftur upp í deild þeirra bestu eftir eitt tímabil í Championship deildinni.
Khan bað stuðningsmenn Fulham afsökunar á frammistöðu liðsins í kvöld og segir að félagið hefur verið að reyna að kaupa miðverði. Hann segir að félagið hefur verið í vandræðum með að fá menn inn og lofar hann að liðið muni spila betur og styrkja sig.
Fulham hefur skorað þrjú mörk og fengið á sig tíu í fyrstu þremur leikjum deildarinnar.
I apologize to @FulhamFC supporters for our performance tonight. We’ve looked to add centre-backs since Wembley, I’m sorry we haven’t yet as 2 got COVID + we lost a Free we thought was close + had another issue with a 4th CB. I promise players in + better efforts from this squad.
— Tony Khan (@TonyKhan) September 28, 2020
Athugasemdir