Guðlaugur Victor Pálsson var á skotskónum þegar Darmstadt heimsótti Osnabrück í þýsku B-deildinni í kvöld.
Guðlaugur Victor kom Darmstadt yfir á 30. mínútu og var staðan 1-0 fyrir hans liði í hálfleik.
Því miður dugði mark hans ekki til sigurs því Osnabrück jafnaði metin á 78. mínútu. Lokatölur 1-1 og er Darmstadt í ellefta sæti deildarinnar með sex stig eftir fimm leiki.
Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn. Hann er búinn að vera frábær með íslenska landsliðinu að undanförnu og verður líklega í byrjunarliðinu gegn Ungverjalandi í næsta mánuði ef hann helst heill heilsu.
Athugasemdir