Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 28. október 2022 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Antony svarar gagnrýnisröddunum
Antony.
Antony.
Mynd: EPA
Það hefur verið mikið fjaðrafok í kringum Brasilíumanninn Antony eftir leik Manchester United gegn Sheriff frá Moldavíu í Evrópudeildinni í gærkvöldi.

Antony hefur verið gagnrýndur fyrir að taka snúning sem endaði á því að vera frekar tilgangslaus í fyrri hálfleiknum.

Antony hefur nú svarað gagnrýnisröddunum í gegnum samfélagsmiðla sína.

„Við erum þekkt fyrir list okkar. Ég mun ekki hætta að gera það sem kom mér hingað," segir Antony sem er mikill skemmtikraftur með boltann.

Antony var keyptur til Man Utd frá Ajax í Hollandi síðastliðið sumar.


Athugasemdir
banner