Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. nóvember 2019 16:15
Magnús Már Einarsson
Arnleifur í Kórdrengi (Staðfest)
Andri Steinn Birgisson, Arnleifur Hjörleifsson og Davíð Smári Lamude.
Andri Steinn Birgisson, Arnleifur Hjörleifsson og Davíð Smári Lamude.
Mynd: Kórdrengir
Kórdrengir halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir 2. deildina næsta sumar en þeir hafa fengið Arnleif Hjörleifsson til liðs við sig.

Arnleifur spilaði með Kára í 2. deildinni í sumar en hann kemur til Kórdrengja frá ÍA.

Af Facebook síðu Kórdrengja
Við kynnum til leiks Arnleif Hjörleifsson sem er gríðarlega efnilegur leikmaður, fæddur árið 2000, en hefur samt sem áður spilað 40 meistaraflokksleiki. Arnleifur spilaði nú í sumar bæði með frábærum 2. flokki ÍA og einnig með Kára í 2. deildinni en þar var hann valinn besti ungi leikmaðurinn. Hann spilaði með Skallagrím árinu áður og var valinn besti leikmaður Skallagríms það árið. Við Kórdrengir erum gríðarlega stoltir að svona ungur og spennandi leikmaður gangi til liðs við okkur.

Einnig viljum við Kórdrengir tilkynna það að Andri Steinn Birgisson muni halda áfram í þjálfarateymi Kórdrengja, og munu hann og Davíð Smári mynda sterkt teymi.

ÁFRAM KÓRDRENGIR
Athugasemdir
banner
banner
banner