Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 28. nóvember 2019 20:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orri Sigurjóns verður áfram í Þór (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnar- og miðjumaðurinn Orri Sigurjónsson verður áfram í herbúðum Þórs. Hann hefur framlengt samning sinn við Akureyrarfélagið.

Þessi 25 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Þór og hefur alla sína tíð spilað með liðinu. Orri hefur samtals skorað sex mörk í 101 deildar og bikarleik með Þórsurum.

Hann hafði hugsað sér að spila í Pepsi Max-deildinni á næsta tímabili, en nú er það ljóst að hann verður áfram í Þór.

„Orri hefur verið algjör lykilmaður síðustu ár og eru þetta því mikil gleðitíðindi!" sagði í tilkynningu Þórs.

Síðasta sumar spilaði hann fimmtán leiki þegar liðið endaði í 6. sæti í Inkasso-deildinni.

Páll Viðar Gíslason tók við Þór af Gregg Ryder eftir síðustu leiktíð.

Athugasemdir
banner
banner
banner