Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 28. desember 2017 15:00
Fótbolti.net
Mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net
Íslenska landsliðið kemur við sögu í mörgum fréttunum.
Íslenska landsliðið kemur við sögu í mörgum fréttunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lars Lagerback sendi íslensku þjóðinni hjartnæma kveðju.
Lars Lagerback sendi íslensku þjóðinni hjartnæma kveðju.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson opnaði markareikning sinn hjá Everton með frábæru marki.  Hann kemur við sögu í mörgum fréttum á listanum.
Gylfi Þór Sigurðsson opnaði markareikning sinn hjá Everton með frábæru marki. Hann kemur við sögu í mörgum fréttum á listanum.
Mynd: Getty Images
Fanndís og Maggi Peran náðu að hrekkja Frey landsliðsþjálfara.
Fanndís og Maggi Peran náðu að hrekkja Frey landsliðsþjálfara.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Viðtal við Pape Mamadou Faye var eitt af mest lesnu viðtölum ársins.
Viðtal við Pape Mamadou Faye var eitt af mest lesnu viðtölum ársins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótboltaárinu 2017 fer senn að ljúka. Hápunktur ársins var án efa þegar íslenska landsliðið tryggði sér sæti á HM í fyrsta skipti í sögunni.

Það endurspeglast á listanum yfir vinsælustu fréttir ársins á Fótbolta.net en af efstu tíu fréttunum fjalla fjórar um íslenska landsliðið á einhern hátt.

Fótbolti.net hefur árið 2017 birt tæplega 23 þúsund fréttir. Hér að neðan má sjá þær 100 fréttir sem voru mest lesnar á árinu sem er að líða.

  1. Klúður hjá Man Utd - Sendur á Laugardalsvöll í gær (fim 09. nóv 10:53)
  2. Í nóvember varð þessi frétt sú mest lesna á Fótbolta.net frá upphafi. Fréttin fjallaði um ótrúlegt klúður hjá Manchester United en félagið ætlaði að senda njósnara sinn á æfingaleik Íslands og Tékklands. Njósnarinn fór til Íslands og mætti í frostið á Laugardalsvöll. Þar kom hann að tómum kofanum enda fór leikurinn fram í Katar. Margir stórir erlendir fjölmiðlar gripu frétt Fótbolta.net og fjölluðu um málið en fréttin vakti heimsathygli.

  3. Topp tíu - Kynþokkafyllstu leikmenn Pepsi-deildar kvenna (fim 03. ágú 12:30)
  4. Fótbolti.net birti í sumar topp tíu lisat yfir kynþokkafyllstu leikmennina í Pepsi-deild karla og í Pepsi-deild kvenna. Aðilar voru í dómnefndundm og vakti valið talsverða athygli. Listinn var settur saman til gamans en hann má sjá hér að neðan og er fólki velkomið að vera ósammála!

  5. Kveðja frá Lars Lagerback: Mun fylgjast með ykkur alla ævi (þri 10. okt 15:48)
  6. Lars Lagerback, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, sendi landsliðinu og íslensku þjóðinni hjartnæma kveðju eftir að Ísland tryggði sér sæti á HM í fyrsta skipti. Kveðjan frá Lars var mjög skemmtileg og vakti hún mikla eftirtekt.

  7. Ragnar Þór fótboltamaðurinn sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot (þri 02. maí 16:32)
  8. Ragnar Þór Gunnarsson, þáverandi framherji Tindastóls, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í apríl fyrir kynferðisbrot gegn stúlku undir lögaldri. Vísir greindi fyrst frá málinu en dómurinn birtist á domstólar.is.

  9. Leikur Leiknis og Fram stöðvaður - Leikmenn fóru út að leita (sun 19. mar 18:51)
  10. 20 mínútna hlé var gert á leik Leiknis Fáskrúðsfjarðar og Fram í Fjarðabyggðarhöllinni í Lengjubikarnum í mars eftir að mikill snjór rann af þaki hallarinnar. Óttast var að börn hefðu lent undir snjónum og allir leikmenn beggja liða fóru út að leita undir snjónum. Sem betur fer reyndust engin börn vera undir snjónum og á endanum hélt leikurinn áfram.

  11. Myndband: Gylfi skoraði af 45 metra færi fyrir Everton (fim 24. ágú 20:12)
  12. Gylfi Þór Sigurðsson varð í sumar langdýrasti leikmaðurinn í sögu Íslands þegar Everton keypti hann frá Swansea á 45 milljónir punda. Nokkrum dögum síðar opnaði Gylfi markareikning sinn með Everton með skoti af 45 metra færi í leik gegn Hadjuk Split í Evrópudeildinni. Þetta frábæra mark vakti mikla athygli.

  13. Einkunnir Íslands: Jón Daði maður leiksins (fös 06. okt 20:34)
  14. Ísland vann glæsilegan 3-0 útisigur á Tyrkjum í undankeppni HM í Eskisehir í október. Sigurinn lagði grunninn að því að Ísland tryggði sér sæti á HM. Einkunnagjöf Fótbolta.net var góð eftir magnað frammistöðu landsliðsins í þessum leik.

  15. Myndband: FH ingar hentu sér í þrígang niður eftir vítið (mið 19. júl 09:00)
  16. FH sló Víking frá Færeyjum út i Meistaradeildinni í júlí. FH komst yfir seint í leiknum í Færeyjum með marki úr vítaspyrnu. Færeyingarnir voru ósáttir við dóminn og ýttu nokkrum sinnum við FH-ingum. Frá vítaspyrnudómnum og fram að miðjunni duttu FH-ingar þrívegis til jarðar. Kristján Flóki Finnbogason féll tvívegis til jarðar sem og Pétur Viðarsson.

  17. Juan Mata fagnar sigrinum í Evrópudeildinni á Íslandi (fös 26. maí 22:13)
  18. Juan Mata vann Evrópudeildina með Manchester United í maí. Hann skellti sér síðan í frí til Íslands. Spánverjinn sást í Nauthólsvík áður en hann skellti sér norður á Akureyri. Nokkrir íslenskir aðdáendur Manchester United náðu að fá mynd af sér með leikmanninum á ferðalaginu á Íslandi.

  19. Segja að Heimir sé besti landsliðsþjálfari í heimi (mán 09. okt 17:11)
  20. Hlaðvarpið Guardian Football Weekly var með umræðu um bestu landsliðsþjálfara í heimi í október. Þar var Heimir Hallgrímsson nefndur til sögunnar eftir magnaðan árangur hans með íslenska landsliðið.

  21. Áfall í Ólafsvík - Fyrirliðinn með stórt æxli í kviðnum (þri 30. maí 08:30)
  22. Er þetta ekki komið nóg? (þri 25. apr 11:00)
  23. Á rúntinum með Perunni: Fanndís sagði Frey að hún væri ólétt (þri 06. jún 20:00)
  24. Hættur að hafa efni á einkaþotum og stílistum (fim 09. feb 16:40)
  25. Yfirlýsing frá Tindastóli: Gerum það sem við getum til að aðstoða Ragnar (mið 03. maí 10:24)
  26. Arnór Borg Guðjohnsen til Swansea (Staðfest) (þri 14. mar 12:18)
  27. Misheppnuð tilraun með „Ofurleikinn" - Verður tómlegur Laugardalsvöllur (mið 02. ágú 16:31)
  28. Modric: Verð að hrósa Íslandi (sun 11. jún 22:03)
  29. Velja Hannes besta markvörð undankeppninnar (mið 11. okt 21:00)
  30. Viðar: Menn í kringum liðið segja mér að ég eigi að kæra þá (þri 13. jún 15:30)
  31. Missir af bikarúrslitum eftir tattú - Sendur aftur til Man Utd (mið 24. maí 14:42)
  32. Strákarnir birta fagnmyndir úr klefanum (mán 09. okt 21:18)
  33. Lars Lagerback um Suarez: Sorglegt fyrir fótboltann (mið 08. mar 22:47)
  34. Stórkostleg frammistaða - Stelpurnar brutu þýska stálið (fös 20. okt 15:53)
  35. Elín Metta hvarf af Petersen svítunni - Þekkir þú þjófinn? (fös 21. júl 15:22)
  36. Af djamminu yfir í fremstu röð (fös 21. apr 12:45)
  37. Einkunnir Tryggva: Aron maður leiksins (sun 11. jún 20:37)
  38. Mynd: Miðjan sem gerði KR-inga brjálaða (sun 02. júl 22:08)
  39. Van Persie gerði allt vitlaust - Eiginkona leikmanns brjáluð (mán 06. feb 11:30)
  40. Arnar Grétars rekinn frá Breiðabliki (Staðfest) (þri 09. maí 16:48)
  41. „Var ákveðinn í að flytja í burtu frá Íslandi“ (mið 12. apr 12:45)
  42. Ryan Mason berst fyrir lífi sínu (sun 22. jan 22:28)
  43. Gylfi opinberar hvern í deildinni hann myndi helst vilja í Swansea (mið 05. apr 08:00)
  44. Zlatan alvarlega meiddur? (fim 20. apr 21:06)
  45. Auglýsing Icelandair fyrir EM fékk 12 stig á Twitter (þri 09. maí 20:34)
  46. Fótbolti.net í hlaðvarpsþjónustum (Podcast) (fös 08. des 09:45)
  47. Pabbi Arons komst ekki á leikinn - Sá um að passa (mán 09. okt 20:46)
  48. Fyrirliðinn sem var í B-liði fyrir þremur árum (fim 20. apr 13:00)
  49. Stjarnan stóð ekki heiðursvörð fyrir Valsmenn (sun 24. sep 14:44)
  50. Gylfi fær miklar skammir þrátt fyrir stoðsendingu (lau 18. nóv 17:40)
  51. Gylfi, Arnór Ingvi og Emil draga sig úr íslenska hópnum (lau 25. mar 15:03)
  52. Myndir: Sjáðu hvernig Zlatan býr - Geggjað hús (mið 15. mar 16:30)
  53. Henry fann til með Gylfa: Aumingja maðurinn (sun 26. nóv 16:50)
  54. Jói Kalli um Klopp: Þetta er bannað á fyrsta þjálfaranámskeiði (mán 18. sep 16:26)
  55. Myndir: Liverpool með glænýja aðferð í varnarvegg (lau 11. feb 18:25)
  56. Aron Einar gekk í það heilaga í dag (lau 17. jún 22:38)
  57. Liverpool gæti þurft að mæta Arsenal í úrslitaleik um Meistaradeildarsæti (mið 17. maí 11:03)
  58. Warnock ósáttur við Heimi: Verður að hafa heila sem landsliðsþjálfari (lau 01. apr 23:31)
  59. Mynd: Ronaldo rakaði hárið af eftir sigurinn í gær (sun 04. jún 18:05)
  60. Mourinho: Viljum ekki spila leikina í ensku úrvalsdeildinni (sun 14. maí 18:12)
  61. Framkvæmdastjóri Víkings: Þjálfari hættir ekki útaf markmannsþjálfara (fös 19. maí 19:06)
  62. Myndir: Hér mun íslenska landsliðið búa í Rússlandi (fös 01. des 17:35)
  63. Hörður Björgvin: Mourinho kom inn í klefa og hrósaði okkur (fim 21. des 14:40)
  64. Bandaríkin ekki á HM - Panama til Rússlands eftir svakalega atburðarás (mið 11. okt 02:14)
  65. Rúmlega sex ár af bulli (sun 19. feb 09:00)
  66. Ef hvert félag í enska gæti endurheimt einn leikmann (fim 09. mar 11:30)
  67. Aron Einar Gunnarsson (þri 13. jún 11:00)
  68. Mynd: Ederson sýnir sárin eftir Mane (mán 11. sep 17:20)
  69. Koeman um markið hans Gylfa: Ég er orðlaus! (fim 24. ágú 22:13)
  70. De Gea gerir menn hjá Real Madrid reiða (mán 01. maí 10:00)
  71. Stuðningsmenn Króatíu brjálaðir út í Modric (lau 17. jún 13:00)
  72. Ramos sendi Pique skilaboð eftir rauða spjaldið (sun 23. apr 22:18)
  73. Milos: Ekki eðlilegt að leikmenn fari á skíði eða snjóbretti (þri 18. apr 12:15)
  74. Aron fékk treyju Modric - Ætlaði ekki að gera sömu mistök (sun 11. jún 21:57)
  75. Heimir skammaði Stan Collymore - „Þetta er ekki spurning" (mán 09. okt 22:05)
  76. Pyry Soiri: Thank you Mr. President! (lau 07. okt 12:58)
  77. Bikarkeppni KSÍ - Hvað gerðist eiginlega? (mán 24. apr 16:25)
  78. Cheick Tiote lést á æfingu í Kína (mán 05. jún 15:45)
  79. Fékk sér "Fanndís Friðriksdóttir '33" húðflúr (þri 25. júl 17:07)
  80. Fékk óvæntan glaðning frá landsliðsmanni (þri 12. sep 20:53)
  81. Freyr reifst við fréttamann: Ekkert með leikkerfið að gera (mið 26. júl 21:38)
  82. Twitter - Félagar Gylfa í landsliðinu grenja úr hlátri (fim 24. ágú 20:21)
  83. Ranieri rekinn frá Leicester (Staðfest) (fim 23. feb 20:04)
  84. Gylfi svarar spurningum lesenda (lau 22. apr 09:00)
  85. Andri Rúnar kallaði Söndru Maríu heilalausa - Baðst svo afsökunar (sun 02. júl 20:23)
  86. Mirror: Gylfi fær sama pakka og Wayne Rooney (mán 17. júl 20:35)
  87. Máni: Fimm leikmenn í landsliðinu sem eiga ekkert erindi (fös 17. feb 17:38)
  88. Joey Barton í 18 mánaða bann frá fótbolta (Staðfest) (mið 26. apr 12:02)
  89. Af hverju er stúkan á Akureyrarvelli á þessum stað? (mán 15. maí 16:45)
  90. Spilaði fyrst með meistaraflokki 12 ára og lék í Pepsi í gær (þri 02. maí 14:40)
  91. Mynd: Svipurinn á Sampaoli þegar Ísland kom upp (fös 01. des 18:01)
  92. Íslendingur æfir með Liverpool og Everton - Man Utd hefur áhuga (mið 02. ágú 12:30)
  93. Útlitið gott fyrir Ísland - Þetta eru næstu leikir (sun 11. jún 22:57)
  94. Allt á suðurpunkti hjá Chelsea - Conte reiður út í Fabregas (mán 14. ágú 22:30)
  95. Heimir Guðjónsson rekinn frá FH (Staðfest) (fös 06. okt 15:20)
  96. Myndband: Ingólfur ósáttur - Ýtti þjálfaranum og braut brúsa (lau 15. júl 19:33)
  97. Fjórði bróðirinn til að skora fyrir íslenska landsliðið (fös 24. mar 20:30)
  98. Ronaldo útskýrir af hverju hann rakaði hárið af sér (mán 05. jún 19:15)
  99. Myndband: Ótrúlegt mark hjá 13 ára íslenskri stelpu (mán 27. mar 16:17)
  100. Íslenskur slúðurpakki #2 (sun 01. okt 19:30)
  101. Byrjaði að æfa fótbolta í febrúar - Á bekknum í Pepsi-deildinni í gær (þri 15. ágú 12:18)
  102. Þetta eru liðin átta sem fara í umspil (þri 10. okt 21:01)
  103. Elín Metta mætti ekki í viðtöl eftir leikinn (þri 18. júl 21:57)
  104. Pétur Viðars fær að heyra það á Twitter - „Kallast að svindla" (sun 17. sep 16:47)
  105. Ronaldo sendi SMS: „Þetta verður að vera lægri upphæð" (fös 28. apr 10:40)
  106. Miðjumaður KA sagður reyna að eyðileggja feril leikmanna (mán 18. sep 11:42)
  107. Besti dómari heims hættur að dæma á Englandi (Staðfest) (fim 16. feb 13:48)
  108. Klopp með færri stig en Van Gaal náði (fim 12. jan 12:20)
  109. Guðni Bergs: Viljum heiðra Eið með eftirminnilegum hætti (mið 13. sep 17:00)
  110. Davíð Oddsson blandar sér í umræðuna um Eið Smára (mið 14. jún 14:33)

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner