Hrannar Snær genginn til liðs við Aftureldingu (Staðfest)


Mynd: Afturelding


Mynd: Afturelding

Hrannar Snær Magnússon er genginn til liðs við Aftureldingu og skrifar undir tveggja ára samning.
Hrannar Snær getur bæði leyst stöðu hægri bakvarðar og hægri kanntmanns en hann fagnaði 22 ára afmæli sínu í gær.
Hann er uppalinn hjá KF og lék sinn fyrsta leik fyrir liðið árið 2018 þá 17 ára gamall. Hann hélt á Selfoss fyrir síðasta tímabil og lék 15 leiki af 22 í Lengjudeildinni.
Hann kvaddi liðið í síðasta mánuði eftir að það féll niður í 2. deildina en hann snýr nú aftur í Lengjudeildina þar sem Afturelding hafnaði í 2. sæti og tapaði úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni gegn Vestra.
„Mér líst mjög vel á strákana og þjálfarana. Það var erfið ákvörðun að fara frá Selfossi en mér líst mjög vel á að spila með Aftureldingu. Ég fylgdist með liðinu síðasta sumar og líst vel á hvernig liðið spilar og hvernig þetta er samsett hérna,” sagði Hrannar eftir undirskrift en hann mun nú spila í treyju Aftureldingar með mosfellsku hljómsveitina KALEO framan á eftir að hafa spilað í treyju Selfyssinga síðasta sumar með hljómsveitinni Stuðlabandið framan á.
„Ég ætla ekkert að skjóta Stuðlabandið niður en ég er meira fyrir KALEO,” sagði Hrannar léttur.






