Kuyt ráðinn stjóri Beerschot (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Dirk Kuyt hefur verið ráðinn stjóri belgíska liðsins Beerschot út tímabilið. Hann tekur við af Andreas Wieland.
Kuyt er fyrrum leikmaður Liverpool en hann spilaði tæpa 300 leiki fyrir enska félagið.
Beerschot spilar í næst efstu deild í Belgíu og situr í 2. sæti með 32 stig eftir 16 leiki, jafn mörg stig og Zultan Waregem sem er á toppnum.
Kuyt er 43 ára gamall Hollendingur og gekk til liðs við Liverpool frá Feyenoord árið 2006 en hann lék einnig með Utrecht, Fenerbache og uppeldisfélagi sínu, Quick Boys.
Árið 2022 var hann ráðinn stjóri ADO Den Haag og skrifaði undir eins árs samning en var rekinn eftir fimm mánuði í starfi.
Dirk Kuyt is de nieuwe hoofdcoach van Beerschot. ?
— K. Beerschot V.A. (@kbeerschotva) December 28, 2023
De Nederlander tekent een contract tot het einde van het seizoen. "Ik kan niet wachten om met heel veel energie en zin te beginnen aan deze nieuwe uitdaging."#WeAre13 pic.twitter.com/sMS84oZF1G






