Rasmus æfir með Gróttu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danski miðvörðurinn Rasmus Christiansen æfir með Gróttu þessa dagana en frá þessu var greint í hlaðvarpsþættinum Gula Spjaldið í gær.
Rasmus lék með Aftureldingu á síðasta tímabili en yfirgaf félagið eftir að tímabilinu lauk og er nú án félags. Hann lék 23 af 25 leikjum Aftureldingar í Lengjudeildinni í fyrra.
Rasmus lék með Aftureldingu á síðasta tímabili en yfirgaf félagið eftir að tímabilinu lauk og er nú án félags. Hann lék 23 af 25 leikjum Aftureldingar í Lengjudeildinni í fyrra.
Rasmus er 34 ára og hefur leikið á Íslandi frá árinu 2010 með einu hléi. Hann hefur leikið með ÍBV, KR, Val, Fjölni og Aftureldingu.
Rasmus var líka orðaður við Fjölni í þættinum. Bæði Fjölnir og Grótta spila í Lengjudeildinni.
Rasmus var líka orðaður við Fjölni í þættinum. Bæði Fjölnir og Grótta spila í Lengjudeildinni.




