Það styttist í næsta fótboltasumar og það er orðið ljóst að mestu hvaða þjálfarar stýra liðunum í þremur efstu deildum kvenna á komandi keppnistímabili.
Í Bestu deild kvenna eru öll lið áfram með sama þjálfara nema Valur. Pétur Pétursson hætti með Val og tóku þeir Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson við liðinu. Báðir eru þeir að snúa aftur í Val; Matthías er fyrrum leikmaður félagsins og var hann einnig aðstoðarþjálfari kvennaliðsins en Kristján þjálfaði Matthías í karlaliðinu á árum áður.
Í Bestu deild kvenna eru öll lið áfram með sama þjálfara nema Valur. Pétur Pétursson hætti með Val og tóku þeir Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson við liðinu. Báðir eru þeir að snúa aftur í Val; Matthías er fyrrum leikmaður félagsins og var hann einnig aðstoðarþjálfari kvennaliðsins en Kristján þjálfaði Matthías í karlaliðinu á árum áður.
Besta deild kvenna
Breiðablik: Nik Chamberlain
Valur: Kristján Guðmundsson og Matthías Guðmundsson
Víkingur R.: John Andrews
Þór/KA: Jóhann Kristinn Gunnarsson
Þróttur R.: Ólafur Kristjánsson
FH: Guðni og Hlynur Svan Eiríkssynir
Stjarnan: Jóhannes Karl Sigursteinsson
Tindastóll: Halldór Jón Sigurðsson
FHL: Björgvin Karl Gunnarsson
Fram: Óskar Smári Haraldsson
Það vekur athygli hversu fáar konur eru að þjálfa í efstu þremur deildunum en það er aðeins ein kona aðalþjálfari í efstu tveimur deildunum. Það er Guðrún Jóna Kristjánsdóttir í Keflavík en liðið stefnir eflaust á að komast beint aftur upp í Bestu deildina í sumar.
Lengjudeild kvenna
Keflavík: Guðrún Jóna Kristjánsdóttir
Fylkir: Bjarni Þórður Halldórsson
Grótta: Dominic Ankers
HK: Pétur Rögnvaldsson
ÍA: Skarphéðinn Magnússon
ÍBV: Jón Ólafur Daníelsson
Afturelding: Perry Mclachlan
Grindavík/Njarðvík: Gylfi Tryggvason
Haukar: Hörður Bjarnar Hallmarsson
KR: Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson
Í 2. deild kvenna mæta liðin sem féllu, Selfoss og ÍR, bæði til leiks með nýja þjálfara. Gunnar Borgþórsson tók við Selfossi en hann þekkir félagið inn og út og þá tóku Kjartan Stefánsson og Egill Sigfússon við ÍR.
Það er enn óráðið með tvö störf í 2. deild kvenna fyrir sumarið.
2. deild kvenna
Selfoss: Gunnar Borgþórsson
ÍR: Kjartan Stefánsson og Egill Sigfússon
Völsungur: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Sarah Elnicky
ÍH: Brynjar Sigþórsson og Svavar Sigurðsson
Einherji: Óráðið
Fjölnir: Veselin Chilingirov
KH: Hannes Bjartmar Jónsson og Rafn Haraldur Rafnsson
Sindri: Jóhann Bergur Kiesel
Vestri: Brenton Muhammad
Álftanes: Arnar Páll Garðarsson
Dalvík/Reynir: Friðjón Árni Sigurvinsson
Smári: Óráðið
KÞ: Caroline Van Slambrouck og Sigurður Sigurðsson
Athugasemdir