Þýski markvörðurinn Ter Stegen sem ver mark Barcelona á Spáni segist lítið sem ekkert vita um fótbolta og að oft sé hlegið að sér vegna þess.
„Fólk hlær þegar ég segi að ég hafi ekkert vit á fótbolta," sagði Ter Stegen.
„Ég horfi ekki mikið á fótbolta nema það séu stórleikir eða að ég þekki einhvern sem er að spila. Stundum er ég spurður um nöfn á leikmönnum og þá get ég engu svarað. T.d í La Liga þá lendi ég oft í þessu með nöfnin, ég þekki ekki nöfn leikmanna."
„En stundum þegar ég sé myndband af þeim á ég auðveldara með að greina hverjir þeir eru. Ég þekki þá frekar út frá því hvernig þeir hreyfa sig á vellinum og hvernig þeir sparka í boltann," sagði Ter Stegen.
Athugasemdir