banner
   mið 29. mars 2023 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Heimild: Þórsport.is 
Egill Orri á reynslu til Midtjylland frá Þór
Lengjudeildin
Mynd: Þórsport.is

Egill Orri Arnarsson leikmaður Þórs fór til reynslu til danska félagsins Midtjylland í síðustu viku. Hann æfði með u16 ára og u17 ára liði félagsins.


Þessi 15 ára gamli leikmaður lék einnig æfingaleik með u16 liðinu gegn AGF en hann „Stóð sig með mikilli prýði og lét sjálfur vel af dvöl sinni í Danaveldi," segir á heimasíðu Þórs.

Hann var hluti af Íslandsmeistaraliði Þórs síðasta sumar en hann lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki í vetur þegar hann kom inn á sem varamaður í Lengjubikarnum gegn Keflavík.

Egill Orri fór á reynslu til Torino undir lok síðasta árs. Hann á þrjá landsleiki fyrir U15 ára landslið Íslands og var á dögunum valinn í æfingahóp hjá U16 ára landsliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner