Fotbolti.net
29.04.19 - 10:15
Elvar Geir Magnússon

Lið vikunnar í enska - Nánast öll vörnin frá Liverpool

Aðeins eitt mark skildi Manchester City og Burnley að í ensku úrvalsdeildinni í gær, Liverpool rúllaði yfir Huddersfield 5-0 á föstudaginn, Tottenham og Arsenal töpuðu á meðan Manchester United og Chelsea gerðu jafntefli. City er með eins stigs forystu á toppnum þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.

Garth Crooks hjá BBC er búinn að setja saman lið umferðarinnar.
Markvörður: Sergio Rico (Fulham) - Lið Fulham er þegar fallið en vann Cardiff um helgina þar sem Rico varði eins og berserkur.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaður: Trent Alexander-Arnold (Liverpool) - Bakvörðurinn ungi lagði upp fyrsta markið gegn Huddersfield, sem Mohamed Salah skoraði.

Varnarmaður: Issa Diop (West Ham) - Tók ábyrgð á lykilstundum þegar West Ham vann Tottenham.

Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Hefur gjörbreytt vörn Liverpool.

Varnarmaður: Andrew Robertson (Liverpool) - Þvílíkt tímabil sem hann hefur átt. Enginn varnarmaður hefur átt fleiri stoðsendingar.

Miðjumaður: Youri Tielemans (Leicester) - Hefur komið að sjö mörkum með beinum hætti í níu síðustu deildarleikjum.

Miðjumaður: Eden Hazard (Chelsea) - Er líklega að spila sína síðustu leiki fyrir Chelsea og nýtur sín vel.

Miðjumaður: Michail Antonio (West Ham) - Þessi nautsterki leikmaður skoraði sigurmarkið gegn Tottenham.

Sóknarmaður: Mohamed Salah (Liverpool) - Fór illa með þreytulegt lið Huddersfield.

Sóknarmaður: Sergio Aguero (Man City) - Fimmta tímabilið í röð nær sá argentínski 20 mörkum.

Sóknarmaður: Sadio Mane (Liverpool) - Skoraði tvö mörk gegn Huddersfield og hefði átt að gera fleiri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.