Fotbolti.net
29.04.23 - 12:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Henríetta spilar ekki meira á árinu - „Eigum eftir að sakna hennar"

Henríetta Ágústsdóttir.

Henríetta Ágústsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Það var erfið stund á Framvellinum í Úlfarsárdal síðastliðið fimmtudagskvöld þegar Henríetta Ágústsdóttir, ungur leikmaður HK, meiddist illa.
Henríetta, sem er öflugur miðjumaður, ökklabrotnaði illa í leiknum eftir að hafa misstigið sig. Þessi efnilegi leikmaður missir af öllu tímabilinu sem er framundan.

Það sem er líka mjög sorglegt er að Henríetta missir af lokakeppni Evrópumótsins sem er í sumar. Hún hefur verið hluti af U19 landsliðinu sem komst á lokakeppnina í síðasta mánuði.

Atvikið átti sér stað snemma í síðari hálfleik í leik Fram og HK í Mjólkurbikar kvenna á fimmtudag. Leikurinn var stöðvaður í rúmlega hálftíma á meðan Henríetta fékk aðhlynningu. Hún yfirgaf leikvöllinn með sjúkrabíl.

Um var að ræða mjög ljótt ökklabrot og voru meiðslin mjög grafísk. Að verða vitni að þessu hafði mikil áhrif á leikmenn og þjálfara úr báðum liðum og átti sér í kjölfarið stað umræða um það hvort ætti að halda leiknum áfram. Að lokum var ákveðið að klára leikinn en það hafði mikil áhrif á HK-liðið sérstaklega enda erfitt að horfa á liðsfélaga lenda í svona slæmum meiðslum.

„Fram að atvikinu var leikurinn vel spilaður af báðum liðum en á meðan aðhlynningu stóð reyndu leikmenn að þjappa sig saman og gera sig tilbúna að klára leikinn en fljótlega eftir að dómari flautar leikinn á að nýju er nokkuð ljóst að tilfinningarnar einfaldlega taka yfir og atvikið hafði eðlilega mikil áhrif á okkur," segir Guðni Þór Einarsson, þjálfari HK, í samtali við Fótbolta.net en leikurinn endaði 3-1 fyrir Fram eftir að Kópavogsliðið hafði verið 1-0 yfir.

„Við í þjálfarateymi HK viljum þakka þjálfurum og starfsfólki Fram fyrir aðstoðina. Þeirra viðbrögð voru framúrskarandi."

Vitum að hún mun snúa sterkari til baka
Henríetta er á 18. aldursári en er þrátt fyrir ungan aldur mikilvægur leikmaður í liði HK og er líkt og áður segir hluti af U19 landsliði Íslands sem komst í lokakeppni EM.

„Því miður er staðan þannig að Henríetta er brotin og fer í aðgerð eftir helgi. Það er mikið högg fyrir okkur í HK en það er ljóst að hún snýr ekki aftur á völlinn fyrr en á næsta ári," segir Guðni.

„Henríetta hefur verið í algjöru lykilhlutverki á miðjunni hjá okkur hún er gríðarlega vinnusöm og áræðin og hennar hugarfar og metnaður hefur skilað henni verðskulduðu sæti í U19 ára landsliði Íslands. Við eigum eftir að sakna hennar á vellinum en jafnframt vitum við að hún mun snúa aftur sterkari til baka."

Rætt var um Henríettu í Lengjudeildarumfjöllun Heimavallarins í gær. Það var minnst á það í þættinum að Henríetta væri einn mest spennandi leikmaður deildarinnar.

„Hún er granítið á miðjunni," sagði Mist Rúnarsdóttir um Henríettu í þættinum en hægt er að hlusta á alla umræðuna hér fyrir neðan.

Við sendum auðvitað Henríettu okkar bestu batakveðjur.
Leikurinn var stoppaður í um hálftíma á meðan var hlúð að Henríettu.

Leikurinn var stoppaður í um hálftíma á meðan var hlúð að Henríettu.

Canon

Mynd: Aðsend

Henríetta er mjög efnilegur leikmaður.

Henríetta er mjög efnilegur leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitunarfjör fyrir Lengjudeildina!

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.