Siggi Raggi: Klúðruðum mikið varnarlega
Auglýsing

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru vonbrigði. Við fórum ofboðslega illa með færin okkar í fyrri hálfleiknum. Fengum 3-4 mjög góð færi og vorum bara solid varnarlega“ Voru fyrstu orð Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar þjálfara Keflavíkur eftir 1-3 tap liðsins gegn ÍBV á heimavelli fyrr í dag.
Eftir markalausan fyrri hálfleik náði Keflavík forystunni um miðbik seinni hálfleiks en við markið virtist allur vindur úr heimamönnum og Eyjamenn gengu á lagið og skoraðu þrjú mörk á níu mínútna kafla.
„Við komumst yfir í seinni hálfleiknum og þá ætlast maður til að við náum að landa þessu en þá klúðrum við mikið fannst mér varnarlega fyrir framan markið okkar og vörðumst illa fyrirgjöfunum sem komu“
Ásgeir Páll Magnússon kom ekki út í síðari hálfleikinn vegna meiðsla og talaði Siggi Raggi um að þær breytingar sem liðið gerði vegna þess hafi riðlað varnarleiknum nokkuð hann bætti þó við það.
„Það á ekki að vera nein afsökun. Við eigum að geta varist einföldum skallaboltum ,stígið fyrir skotmenn og hreinsað burt lausa bolta úr teignum.“
Allt viðtalið við Sigga Ragga má sjá hér að ofan.