„Þessi var mikilvægur. Þetta var bara erfiður leikur og við þurftum að hafa mikið fyrir hlutunum í dag,'' segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnuna, eftir 2-0 sigur gegn Val í 2. umferð Bestu deildar.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 Valur
Óskar var spurður út í hvað honum fannst um frammistöðuna hér í dag.
„Ég var ánægður með ofboðslega margt. Já ég er sammála þér, mér fannst við byrja gífurlega vel. Hún eiginlega slapp þarna í gegn áfyrstu þrátíu sekúndunum þannig við greinilega lærðum eitthvað af síðasta leik. Mér finnst við hafa stjórn á öllu sem við vorum að gera, þanga til við skorum þá fannst mér við missa aðeins smá tök,''
„Ég ber virðingu fyrir Val. Meðalaldur liðsins er um 19 ára gamalt eða eitthvað og þær geta fokking djöflast þessar stelpur, afsakið orðbragðið á mér. Í alvörunni, þetta var bara ógeðslega erfiður leikur. Ég var mjög ánægður með stelpurnar mínar að taka á móti því,''
,,Það kom 'moment' í leiknum í seinni hálfleik þar sem staðan var 0-0 sem var 'fifthy-fifthy' líka. Ef að valur hefði skorað fyrsta markið hvað þá, mörk breyta leikjum og allt það. Aðal atriði fyrir mig er bara að við vinnum alla leiki á Samsungvelli. Þetta er okkar virki og við viljum ekki fá neinn hingað í heimsókn og láta þeim líða vel. Það voru margir í stúkunni sem ég var mjög ánægður með því að karfan og handboltinn er í gangi á fullu núna, þannig ég var mjög ánægður að sjá mætinguna. Það kom mér bara smá á óvart ef ég á að vera heiðarlegur,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.























