Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætla að halda ungstirnum sínum
Mynd: EPA
Bournemouth ætlar að gera allt til að halda ungstirnunum Rayan og Eli Junior Kroupi hjá félaginu.

Rayan er 19 ára gamall Brasilíumaður en hann kom til liðsins frá Vasco da Gama í janúar eftir að félagið seldi Antione Semenyo. Rayan kom sterkur inn og kom að sjö mörkum í 15 leikjum í úrvalsdeildinni.

Junior Kroupi er einnig 19 ára en Bournemouth keypti hann frá franska liðinu Lorient í febrúar í fyrra og hann kláraði tímabilið í Frakklandi. Hann spilaði 33 leiki og skoraði 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð.

TalkSport greinir frá því að það er 100 milljón evra riftunarákvæði í samningi Rayan sem félög geta ekki nýtt sér fyrr en næsta sumar. Þá hafa Arsenal og Man Utd áhuga á Kroupi en félagið vill halda honum.
Slapp
banner