Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 18:27
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið FH og ÍA: FH hristir upp í þessu með fimm breytingum
Úlfur Ágúst Björnsson snýr aftur í byrjunarlið FH
Úlfur Ágúst Björnsson snýr aftur í byrjunarlið FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tekur á móti Skagamönnum í 9. umferð Bestu deild karla í kvöld á Kaplakrikavelli. Flautað verður til leiks klukkan 19:15. 

Bæði lið vonast til þess að komast á sigurbraut í kvöld en heimamenn í FH eru enn í leit af sínum fyrsta sigri í deildinni á meðan ÍA vonast eftir því að lyfta sér upp í efri helming eftir brösuga byrjun.


Lestu um leikinn: FH 0 -  0 ÍA

FH gerir fimm breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn Víkingi en inn koma Kristján Snær Frostason, Kristján Flóki Finnbogason, Tómas Orri Róbertsson, Úlfur Ágúst Björnsson og Arnór Borg Guðjohnsen fyrir Sverrir Pál Hjaltested sem tekur út leikbann, Gils Gíslason, Arngrím Bjart Guðmundsson, Benjamín Bæring Þórsson og Róbert Huga Sævarsson.

ÍA gera þá einnig tvær breytingar á sínu liði en inn koma Johannes Vall og Jón Gísli Eyland fyrir Gísla Laxdal Unnarsson og Ómar Björn Stefánsson.


Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
90. Arnór Borg Guðjohnsen

Byrjunarlið ÍA:
37. Jón Sölvi Símonarson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson
11. Gísli Eyjólfsson
13. Erik Tobias Sandberg
21. Böðvar Böðvarsson (f)
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 9 7 1 1 33 - 20 +13 22
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp
banner