Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 10:58
Elvar Geir Magnússon
Formannsskipti hjá Val
Styrmir Þór Bragason.
Styrmir Þór Bragason.
Mynd: Valur
Formannsskipti hafa orðið hjá fótboltadeild Vals en Björn Steinar Jónsson, sem hefur verið formaður síðustu tvö ár, hefur stigið út úr stjórninni.

Frá þessu er greint á Vísi en Styrmir Þór Bragason tekur við sem formaður.

Styrmir var varaformaður undir formennsku Björns en hann var einnig framkvæmdastjóri Vals milli 2024 og 2025.

Breki Logason, sem hefur setið í stjórn fótboltadeildarinnar síðustu ár, tekur við sem varaformaður af Styrmi.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á stefnu Vals í fótboltanum en fyrir þetta tímabil tók Gareth Owen við sem yfirmaður fótboltamála og Hermann Hreiðarsson var ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks karla.
Slapp
banner
banner