Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson er í byrjunarliði Brann sem mætir Sarpsborg núna klukkan 17 í norsku úrvalsdeildinni. Þetta verður að öllu óbreyttu hans síðasti leikur fyrir Brann þar sem lánssamningur hans er að renna út.
Jón Dagur kom til Brann á láni frá Herthu Berlín í Þýskalandi. Freyr Alexandersson stýrir Brann og er liðið í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar eftir ellefu umferðir.
Jón Dagur, sem er 27 ára, er með tvö mörk og tvær stoðsendingar í ellefu deildarleikjum með Brann.
Kristall Máni Ingason er einnig í byrjunarliði Brann í dag en þeir Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru á meiðslalistanum.
Þetta verður síðasti leikur Brann fyrir HM hlé.