Sævar Atli Magnússon er byrjaður að æfa aftur með norska liðinu Brann eftir gríðarlega erfið meiðsli. Hann meiddist í 2-2 jafntefli gegn Frakklandi á Laugardalsvelli í undankeppni HM og hefur gengið í gegnum erfiða tíma.
Hann reif liðþófa í hné og lenti í mörgum áföllum á eftir. Hann fékk sýkingu í hnéið og hefur allt í allt þurft að gangast undir hnífinn fjórum sinnum. Það eru því gríðarlega ánægjulegt að sjá hann aftur á æfingasvæðinu.
Eggert Aron Guðmundsson er einnig byrjaður að æfa en hefur verið fjarverandi í hálft ár eftir að hafa einnig gengist undir aðgerð á hné.
Brann er í 8. sæti norsku deildarinnar með 13 stig eftir 11 umferðir undir stjórn Freys Alexanderssonar. Kristall Máni Ingason hefur spilað tíu leiki, skorað fjögur mörk og lagt upp eitt. Jón Dagur Þorsteinsson hefur spilað alla ellefu leikina, skorað tvö mörk og lagt upp eitt.


