Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. júní 2020 13:00
Magnús Már Einarsson
Sky: Koulibaly ekki til Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur ekki áhuga á að fá Kalidou Koulibaly, varnarmann Napoli, í sínar raðir samkvæmt frétt Sky í dag.

Koulibaly hefur verið orðaður við bæði Liverpool og Manchester City að undanförnu.

Samkvæmt frétt Sky vill Napoli fá í kringum 90 milljónir punda fyrir Koulibaly en Liverpool getur ekki boðið meira en 60 milljónir punda.

Liverpool er með fjóra miðverð innan sinna raða en það eru Dejan Lovren, Virgil Van Dijk, Joel Matip og Joe Gomez.

Lovren gæti farið í sumar og þá gæti Liverpool keypt varnarmann í staðinn. Það verður þó ekki Koulibaly samkvæmt frétt Sky.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner