Ákveðinn í að fá Haaland til Barcelona - City veitir Liverpool keppni um Guehi - Everton mun ekki hlusta á tilboð í Branthwaite
Magnús Már: Það er gjörsamlega óásættanlegt
Viktor Jóns: Tók eftir því strax í vetur hvað býr í þessum gæja
Damir: Það er enginn skjálfti
Láki: Þetta réðst ekki hér
Lárus Orri kjarnyrtur „Berjast fyrir þessu og fara í svolítið fuck you mode"
Dóri Árna: Það er alveg rétt að stigasöfnun hefur verið rýr í síðustu deildarleikjum
Breki Baxter: FH leikurinn situr núna í okkur
Gummi Kristjáns léttur: Er að spila alltof aftarlega á vellinum
Túfa hefur ekki áhyggjur - „Alvöru menn taka mótlætið á kassann“
„Ekkert að rífa okkur upp til skýja fyrir að vinna Val hérna“
Valdimar Þór: Þurftum ekkert að elta þá út um allt
Sölvi eftir stórsigur á Meistaravöllum: Líst mjög vel á þetta gras hér í KR
Óskar Hrafn hugar að breytingum: Egó þjálfarans getur ekki verið að þvælast fyrir árangri liðsins
Davíð Smári: Ósáttur með að við skulum gleyma fyrir hvað við stöndum
Bjarni Guðjón: Það er gaman að vera Þórsari í dag
„Fullyrði að ekki nokkur leikmaður hefur bætt sig jafn mikið eftir þrítugt"
Rúnar: Þá tekur þú ekki besta leikmanninn í liðinu útaf
Hallgrímur Mar: Getum engum öðrum en sjálfum okkur um kennt
Heimir: Þeir voru að svæfa leikinn og komust upp með það
Jón Daði: Þarf að komast í burtu frá fótbolta og hreinsa hugan
   mið 29. júní 2022 16:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Grodzisk Wielkopolski
Berglind hrósaði Gunnhildi fyrir undirbúninginn
Icelandair
Berglind í leiknum
Berglind í leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í þann mund sem Berglind rennir boltanum í netið
Í þann mund sem Berglind rennir boltanum í netið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Geggjaður sigur, gott að vinna leikinn og fara með þessa sigurtilfinningu á EM," sagði Berglind Björg Þorvalsdóttir við Fótbolta.net eftir sigur Íslands gegn Póllandi í vináttulandsleik í dag.

Lestu um leikinn: Pólland 1 -  3 Ísland

Ísland var undir í leikhléi en þökk sé þremur íslenskum mörkum í seinni hálfleikur vannst íslenskur sigur.

„Mér fannst við samt vera fínar í fyrri hálfleik, við náðum bara ekki að skapa þessi hættulegu færi en það kom í seinni hálfleik og við tókum þrjú stig. Við þurftum aðeins að skerpa á, gera betur og við gerðum það."

Berglind skoraði jöfnunarmark Íslands snemma í seinni hálfleik eftir undirbúning frá Gunnhildi Yrsu Jónsdóttur.

„Það er alltaf gaman að skora og Gunný gerði náttúrulega frábærlega vel þarna." Eftirleikurinn eftir undirbúning Gunnhildar var ekki erfiður, var þetta auðveldasta mark sem þú hefur skorað? „Já kannski, mögulega."

Hvernig hafa þessir síðustu dagar í Póllandi verið og hvernig líst þér á framhaldið í Þýskalandi? „Þeir hafa verið góðir, ótrúlega heitt hérna og við erum svona að venjast því. Þetta er bara búið að vera æðislegt, við erum tilbúnar að fara til Þýskalands, æfa ennþá meira og vera ennþá meira 'ready' fyrir EM," sagði Berglind.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan


Athugasemdir
banner
banner