Hinn bráðefnilegi Xavi Simons er búinn að skrifa undir fimm ára samning við hollenska stórveldið PSV Eindhoven.
Hann rauf þar með munnlegt samkomulag sem hann hafði gert við Paris Saint-Germain um að skrifa undir nýjan samning við félagið og fara yfir til PSV á láni.
Simons er 19 ára gamall miðjumaður sem fékk að spreyta sig í níu leikjum með aðalliði PSG á síðustu leiktíð.
Hann á 20 leiki að baki fyrir yngri landslið Hollands eftir að hafa komið upp úr frægri unglingaakademíu Barcelona áður en hann skipti til PSG.
Simons rennur út á samningi hjá PSG og fer því frítt til PSV.
Xavi Simons is PSV’er 🔴⚪️⚡️
— PSV (@PSV) June 28, 2022
Sweet dreams 😘#TheXaviWay @xavisimons pic.twitter.com/AtOUatvURg
Athugasemdir