Fotbolti.net
29.07.21 - 14:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ásta Vigdís í Augnablik (Staðfest)

Ásta Vigdís var öflug með Keflavík á síðustu leiktíð.

Ásta Vigdís var öflug með Keflavík á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Markvörðurinn Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir hefur fengið félagaskipti úr Breiðabliki yfir í venslafélagið Augnablik.
Ásta Vigdís hefur verið varamarkvörður Blika í sumar á meðan Telma Ívarsdóttir hefur verið aðalmarkvörður.

Ásta Vigdís, sem er fædd árið 1996, var á láni hjá Keflavík síðasta sumar þar sem hún hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni og í Pepsi Max-deildina.

Hún mun núna verja mark Augnabliks seinni hluta sumars. Augnablik er á botni Lengjudeildarinnar.

Fótbolti.net er með beina lýsingu frá gluggadeginum en hægt er að nálgast hana hérna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.