Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 29. júlí 2021 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KR sækir ungan leikmann frá Ástralíu (Staðfest)
KR fær liðsstyrk.
KR fær liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk fyrir seinni hluta tímabilsins í Lengjudeildinni.

Félagið hefur samið við hina 19 ára gömlu Aideen Hogan Keane frá Ástralíu.

Hún er miðjumaður sem var síðast á mála hjá Western Sydney Wanderers í Ástralíu - eftir því sem Fótbolti.net kemst næst.

KR situr á toppi Lengjudeild kvenna, en félagið er að missa fyrirliða sinn, Ingunni Haraldsdóttur til PAOK í Grikklandi. Með því að smella hérna geturðu lesið viðtal sem var tekið við Ingunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner