Aké framlengir við Man City til 2027 (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Nathan Aké skrifaði í dag undir samning við Manchester City til næstu fjögurra ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Aké, sem er 28 ára gamall, kom til Man City frá Bournemouth fyrir þremur árum.
Hann var inn og út úr liðinu fyrstu tvö tímabilin með liðinu en fékk stórt hlutverk á síðustu leiktíð.
Þá var hann mikilvægur hlekkur í vörn liðsins sem vann þrennuna og hefur hann verið verðlaunaður fyrir frammistöðu sína með nýjum samningi sem gildir til 2027.
Aké mun þéna 160 þúsund pund á viku en það er svakaleg launahækkun frá samningnum sem hann gerði árið 2020.
Pep Guardiola, stjóri Man City, lítur á Aké sem algjöran lykilmann og var því ákveðið að gera vel við hann.