Fotbolti.net
29.07.23 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Cavani riftir við Valencia (Staðfest) - Á leið til Boca Juniors

Cavani riftir við Valencia (Staðfest) - Á leið til Boca Juniors
Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani hefur fengið samningi sínum hjá Valencia rift eftir að hafa spilað aðeins eitt tímabil með félaginu.
Cavani, sem er 36 ára gamall, kom til Valencia á frjálsri sölu fyrir síðustu leiktíð.

Hann hafði áður spilað fyrir Manchester United, Paris Saint-Germain, Napoli og Palermo, en ákvað að taka slaginn með Valencia í La Liga.

Þar skoraði hann 5 mörk í 25 deildarleikjum en ákvað að rifta við félagið í sumar.

Cavani hefur þegar komist að samkomulagi við argentínska félagið Boca Juniors og er gert ráð fyrir að hann verði kynntur þar í næstu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.