Cavani samdi við Boca Juniors (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Úrúgvæinn Edinson Cavani samdi í dag við argentínska félagið Boca Juniors en samningurinn gildir út 2024.
Þessi 36 ára gamli sóknarmaður rifti samningi sínum við spænska félagið Valencia fyrr í dag og var hann ekki lengi að finna sér nýtt félag.
Cavani hefur spilað fyrir mörg af stærstu félögum heims en þar má nefna Paris Saint-Germain, Manchester United og Napoli.
Hann hefur nú kvatt Evrópuboltann í bili því í dag gerði hann eins og hálfs árs samning við Boca Juniors í Argentínu.
Boca Juniors hefur 35 sinnum unnið argentínsku deildina en aðeins River Plate hefur unnið oftar eða 38 sinnum.