Fotbolti.net
29.07.23 - 13:27
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

El Bilal Toure til Atalanta fyrir metfé (Staðfest)

El Bilal Toure til Atalanta fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Atalanta keypti í dag sóknarmanninn El Bilal Toure frá Almería fyrir metfé eða 30 milljónir evra.
Toure, sem er 21 árs, skoraði 7 mörk fyrir Almería í La Liga á síðustu leiktíð.

Atalanta komst að samkomulagi við Almería um kaup á Toure á dögunum og greiðir félagið metfé fyrir hann.

Þessi landsliðsmaður Malí var kynntur hjá félaginu í dag og er því fjórði leikmaðurinn sem Atalanta fær í glugganum. Hann á að leysa Rasmus Höjlund af hólmi en hann er á leið til Manchester United.

Atalanta keypti Mitchel Bakker frá Bayer Leverkusen og þá komu þeir Sad Kolasinac og Michel Adopo á frjálsri sölu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.