Inter Miami kaupir ungan leikmann frá Argentínu (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bandaríska félagið Inter Miami hefur fyllt síðasta lausa útlendingaplássið með kaupum sínum á argentínska miðjumanninum Facundo Farias en hann kemur frá Colon í heimalandinu.
Inter Miami keypti útlendingapláss af San Jose Earthquakes fyrir 150 þúsund dollara á dögunum og voru einhverjir að búast við að Luis Suarez eða Andrés Iniesta væru á leiðinni.
Stuðningsmenn Miami voru hins vegar sannfærðir um að svo væri ekki og höfðu þeir rétt fyrir sér.
Miami gekk í dag frá kaupum á hinum tvítuga Farias frá Colon og mun hann nýta síðasta lausa útlendingaplássið á tímabilinu, nema auðvitað Miami kaupi annað slíkt pláss.
Glugginn lokar 2. ágúst og ólíklegt að fleiri leikmenn séu á leiðinni á næstu dögum.
Suarez fær sig ekki lausan frá Gremio í Brasilíu og Iniesta hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi framtíðina.
Lionel Messi, Jordi Alba og Sergio Busquets komu allir í þessum mánuði en það verða ekki fleiri stjörnur sem mæta til félagsins í bili.