Fotbolti.net
29.07.23 - 18:24
Brynjar Ingi Erluson

Leeds kaupir Darlow frá Newcastle (Staðfest)

Leeds kaupir Darlow frá Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Leeds

Leeds United hefur fest kaup á enska markverðinum Karl Darlow en hann kemur frá Newcastle United.
Darlow er 32 ára Englendingur sem á 100 leiki að baki fyrir Newcastle í öllum keppnum.

Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri síðustu ár og því kominn tími á breytingar.

Á síðasta tímabili eyddi hann síðari hlutanum á láni hjá Hull í ensku B-deildinni og hann mun vera þar áfram því Leeds United hefur nú gengið frá kaupum á honum.

Darlow var aðalmarkvörður Newcastle er liðið komst upp úr B-deildinni fyrir sex árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.