Fotbolti.net
29.07.23 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Wesley farinn eftir erfiða tíma hjá Aston Villa (Staðfest)

Wesley farinn eftir erfiða tíma hjá Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wesley er genginn til liðs við Stoke eftir erfiða tíma hjá Aston Villa. Hann gerir eins árs samning við Championship félagið.

Wesley gekk til liðs við Aston Villa frá Club Brugge sumarið 2019. Hálfu ári síðar meiddist hann illa og spilaði ekki fótbolta aftur fyrr en í apríl 2021.

Wesley skoraði 6 mörk í 26 leikjum og fór þrisvar á lán frá Aston Villa. Hann lék með Levante á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 4 mörk í 43 leikjum.

Hann er 26 ára gamall Brasilíumaður og á að baki einn landsleik fyrir þjóð sína.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.