Fotbolti.net
29.08.13 - 14:31
Elvar Geir Magnússon

Samba í sitt þriðja félag á sex mánuðum (Staðfest)

Samba í sitt þriðja félag á sex mánuðum (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn Christopher Samba er kominn í þriðja félag sitt á sex mánuðum. Þessi fyrrum leikmaður Queens Park Rangers hefur fært sig um set í Rússlandi, yfirgefið Anzhi Makhachkala og gengið í raðir Dinamo Moskvu.
Tveir samherjar hans í Anzhi fóru sömu leið, miðjumaðurinn Alexei Ionov og markvörðurinn Vladimir Gabulov.

Anzhi hefur verið að selja alla sína helstu leikmenn eftir að eigandinn Suleiman Kerimov ákvað að hætta við öll markmið félagsins og hætta að dæla peningum í það.

„Metnaður minn var ekki í takt við metnað félagsins og því er ég þakklátur Dinamo fyrir að hafa gefið mér þetta tækifæri,\" segir Samba.

Knattspyrnustjóri Dinamo Moskvu er Dan Petrescu, fyrrum leikmaður Rúmeníu og Chelsea. Liðið er í áttunda sæti rússnesku deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.