Bjössi Hreiðars: Allt annað dæmi að spila með áhorfendur
Auglýsing

Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Grindavík vann sinn þriðja sigur í röð í Lengjudeild karla þegar liðið tók á móti Vestra í Grindavík fyrr í dag en lokatölur urðu 2-1. Josip Zeba kom heimamönnum yfir eftir um hálftíma leik og tvöfaldaði Sigurjón Rúnarsson svo forystuna í upphafi síðari hálfleiks en í millitíðinni hafði Aron Jóhannsson brennt af vítaspyrnu fyrir Grindvíkinga. Gunnar Jónas Hauksson minnkaði munin fyrir Vestra eftir tæplega klukkustundar leik en nær komust Vestramenn ekki og stigin þrjú urðu þar með eftir í Grindavík.
„Við hefðum alveg getð fengið á okkur mark á 90.mínútu í þessum sem og síðasta leik. En það er nú bara þannig í þessari deild að þetta er bara það jafnt og þegar liðin blasta öllu fram í restina er hætt við að menn fái mark á sig. Vestraliðið er bara þrusu lið, við erum búnir að eiga tvo mjög jafna leiki við þá í sumar og þeir komu hérna og voru bara mjög flottir í dag.“
Sagði Sigurbjörn Hreiðarsson eftir sigur sinna manna í dag og þá staðreynd að Grindvíkingar hafa komist fyrir markaleka á lokamínútum leikja en Grindavík hefur tapað fjölmörgum stigum í sumar eftir að hafa fengið á sig mörk undir lok leikja.
Grindvíkingar réðu ferðinni framan af fyrri hálfleik og komust verðskuldað yfir og hefðu að ósekju mátt fara til búningsherbergja í hálfleik með stærra forskot. Liðið gaf heldur eftir í síðari hálfleik en var Sigurbjörn sáttur með leikinn í heild?
„Ég er mjög sáttur við vinnuframlagið hjá mönnum. Menn eru að leggja sig fram og við erum að skora í hverjum leik og fá færi. En við getum spilað boltanum betur stundum á milli okkar “
Þau gleðitíðindi bárust í morgun að áhorfendur hefðu verið leyfðir aftur á íþróttaleikjum hérlendis en allir leikir hafa verið án áhorfenda eftir að fótboltinn fór aftur af stað eftir Covidhlé. Um þetta sagði Sigurbjörn.
„Það er frábært. Auðvitað er maður sjálfur bara í adrenalíni og öðru slíku sem þjálfari en ég veit að sem leikmaður á vellinum þá er það bara allt annað dæmi að spila með áhorfendur. Það hefur verið eins og menn tala um æfingarleikjabragur á þessu svo vonandi fyllist stúkan núna og við getum farið að lifa þokkalega eðlilegu lífi.“
Sagði Sigurbjörn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.