Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mán 29. ágúst 2022 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Hólmar Örn: Verðum að sýna betri spilamennsku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur sýndi ekki sannfærandi frammistöðu í 1-1 jafntefli gegn Fram á Hlíðarenda í dag.


Valur tók forystuna undir lok fyrri hálfleiks og verðskuldaði Fram jöfnunarmark sitt á 87. mínútu.

„Við vorum ólíkir sjálfum okkur í dag og spiluðum ekki góðan leik. Við vorum svolítið að reyna að halda fengnum hlut þarna í seinni hálfleik og fengum það í andlitið. Eftir það rifum við okkur aðeins í gang en það var bara of seint," sagði Hólmar Örn Eyjólfsson miðvörður Vals.

„Þetta var off dagur hjá okkur og Fram voru flottir, þeir eru góðir með boltann og gera þetta erfitt fyrir andstæðinginn. Ég er pínu svekktur fyrir okkar hönd að hafa ekki náð að sýna okkar rétta andlit."

Hólmar er sammála þjálfara sínum Ólafi Jóhannessyni um að Framarar hafi átt skilið að jafna leikinn enda hafi gestirnir verið betri stóran hluta síðari hálfleiks.

„Við vörðumst ágætlega þrátt fyrir að hafa ekki átt okkar besta dag. Þeir fengu ekki mikið af opnum færum, við fengum mögulega fleiri opin færi en þeir. En eins og ég segi þá verðum við að sýna betri spilamennsku úti á vellinum."

Valsarar vildu fá dæmda rangstöðu þegar Fram jafnaði en Hólmar segist ekki vera búinn að sjá markið í endursýningu.


Athugasemdir
banner
banner
banner