Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spánn: Van de Beek lagði upp í öruggum sigri Girona
Mynd: EPA

Girona 4 - 0 Osasuna
1-0 Bryan Gil ('34 )
2-0 Viktor Tsygankov ('53 )
3-0 Abel Ruiz ('56 )
4-0 Christian Stuani ('90 )


Girona vann sinn fyrsta leik á tímabilinu í kvöld þegar liðið fór illa með Osasuna.

Bryan Gil, sem er á láni frá Tottenham, sá til þess að Girona var með 1-0 forystu í hálfleik þegar hann mætti á fjærstöngina og renndi sér á boltann og skoraði eftir fyrirgjöf frá Viktor Tsygankov.

Tsygankov bætti öðru markinu við og stuttu síðar skoraði Abel Ruiz þriðja markið með glæsilegu viðstöðulausu skoti.

Undir lok leiksins innsiglaði Cristhian Stuani sigurinn þegar hann skoraði á opið markið eftir fyrirgjöf Donny van de Beek sem gekk til liðs við félagið frá Man Utd í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner